Ég hef allt of oft heykst á því að sækja tónleika sem mig virkilega langaði að sjá og heyra. Ég veit að það er eðlislægri nísku minni um að kenna. Hvaða tónleikum ætli ég sjái svo mest eftir að hafa sleppt vegna þessa persónuleikabrests? Jú, það eru tónleikar sem James Taylor hélt í Hörpunni 18. maí 2012. Það er eitthvað við tónlist Taylors sem dregur mig að henni. Ef til vill er það blanda af silkimjúkri baritón röddinni, hvernig hann nálgast gítarleikinn og textum sem maður einhvern vegin tengir við.
Textinn
Tónleikarnir sem ég nefndi hér á undan voru að sögn vel heppnaðir. Taylor tók hvern smellinn á fætur öðrum og hann hefur átt þá marga á löngum ferli. Hann hefur örugglega flutt lagið sem hann á allt að þakka. Lagið Fire and Rain. Taylor samdi lagið árið 1968 fyrir aðra sólóplötu sína, Sweet Baby James. Textinn eru þrjú erindi sem segja frá hugrenningum Taylors af þremur ólíkum tilefnum. Erindin eiga öll sameiginlegt að vera mjög svo persónuleg og lýsa þungum hug. Í einhverju viðtalinu sagði Taylor að hann myndi sennilega ekki semja svo persónulegan texta í dag vitandi að miljónir myndu lesa hann og túlka. Kveikjan að fyrsta erindinu var fregn af sjálfsvígi æskuvinkonu hans nokkrum mánuðum áður, Suzanne Schnerr. Þá var hann að vinna að fyrstu plötu sinni og fjölskylda og vinir sögðu honum ekki frá þessum sorgaratburði strax svo hann gæti lokið við plötuna. Annað erindið samdi Taylor þegar hann var í meðferð við þunglyndi og eiturlyfjafíkn. Þriðja og síðasta erindið fjallar síðan um að því er virðist togstreitu eftirsjár og væntinga um frægð og frama sem virtist vera handan við hornið.
Lagið
Lagið Fire and Rain er mjög einkennandi fyrir tónlist Taylors og hans sérstaka stíl. Hann plokkar gítarinn og undirleikurinn hljómar er eins og það sé píanóleikari á ferð. Þumallinn er þá í hlutverki vinstri handar píanóleikarans og vísifingur, langatöng og baugfingur eru í hlutverki hægri handarinnar. Hugsanlega hefur cellónámið einnig haft áhrif á stíl Taylors en hann lærði að spila á celló áður en hann lærði á gítar. Hljómasetningin í laginu byggir á A dúr hljómasetningu en lagið hljómar í C dúr því Taylor spilar lagið með klemmu á þriðja bandi. Taylor velur oft að nota þennan hljómagang og nota klemmu svo tóntegundin henti rödd hans. Hugsanlega gæti ástæðan einnig verið hvernig hann vill nota bassann eða vegna þess að hljómasetning í A dúr auðveldar honum að skreyta nóturnar á þann veg sem hann vill?
Fire and Rain er ekki flókið lag. Við fyrstu sýn mætti ætla að það sé kjörið lag fyrir byrjendur í gítarleik en svo er nú ekki alveg. Hljómagangurinn er A, Em, D, A, Asus2, E og G í erindunum og D, Bm, A, Asus2, D og Bm í hverri línu í viðlaginu nema að síðasta línan endar á E, G. Þetta hljómar einfalt en er það ekki ef þig langar að hljóma eins og Taylor. Þá verður þú að spila innganginn sem er svo einkennandi fyrir lagið og plokka strengina. Sennilega er inngangurinn flóknasti hluti lagsins en með þolinmæði er hægt að ná þessu.
Útsetningin sem ég spila hér fyrir neðan fékk ég á Six String Fingerpicking. Þetta er gítarkennsluvefur fyrir þá sem vilja spila fullar plokkaðar útsetningar á lögum með bassa, millirödd og laglínu. Chris Murrin útsetur öll lögin, kennir hvernig á að spila útsetningarnar og selur nóturnar. Ég mæli eindregið með þessari síðu. Ég má að sjálfsögðu ekki birta nóturnar vegna þess að ég á þær ekki sjálfur en ég má birta hljómaútgáfu sem er hér.
Finnst ég er farinn að auglýsa gítarkennsluvefi þá verð ég að mæla með tveimur öðrum sem ég nota mikið. Justin guitar er frábær gítarkennsluvefur og GuitarZero2Hero. Á báðum vefjunum er þetta lag kennt í einfaldari útgáfu. Á GZ2H er lagið meira að segja kennt í þremur mismunandi þyngdarstigum.


