Upphaflega skrifað 14. júlí 2002.
Mér þótti dýrt leyfið í Gufudalsá en við Guðrún ákváðum samt að slá til. Þarna dvöldum við tvo daga í ágætu veiðihúsi með vinafólki og freistuðum þess að veiða bleikju. Mér skilst að veiðileyfin í þessari á séu eftirsótt þannig að það hlýtur að fara einhverjum sögum af meiri fiski en við urðum vör við. Við fundum fisk aðeins á einum stað eða í Rennunni sem er ofarlega í ánni. Þar náði ég að landa þremur eða fjórum bleikjum en þær voru smáar. Við vorum þarna í byrjun veiðitíman og sennilega vorum við bara of snemma á ferð.


