Sennilega hef ég verið undir áhrifum frá síðustu veiðiferð í Heiðarvatnið þegar ég lagði mjög svo bjartsýnn í gönguna á heiðina. Á leiðinni upp var ég farinn að hugsa um hvernig ég gæti létt mér burðinn þegar ég gengi aftur til byggða með aflann. Þessi ofurbjartsýni er á engum rökum reist vegna þess að ég veit að þótt það hafi fiskast síðast þá getur næsta ferð vakið grun um að ég hafi tæmt vatnið í ferðinni á undan. Jæja, en bjartsýnn gekk ég af stað.
Ég hef stundum lýst göngunni sem sérlega erfiðri en það segir nú kannski meira um líkamlegt ástand mitt frekar en eitthvað annað. Það eru ekki nema 2,5 kílómetrar frá þeim stað sem bílnum er lagt að Breiðuvíkinni. Vissulega fer púlsinn á hreyfingu vegna þess að gangan er öll á brattann. Ég ákvað að ganga að þessu sinni vestur fyrir vatnið og byrja veiðina norðan við Réttartangann. Alltaf þegar ég geng fram hjá grjóthleðslunum sem afmarka réttarhólfin á tanganum leitar hugurinn til þess lífs sem landið okkar bauð íbúunum langt fram á tuttugustu öld. Veðrið var sérlega fallegt, sól og blíða og nánast logn. Álftarparið sem á vatninu er hefur komið upp einum unga því þrír fuglar voru á sundi um vatnið. Eins og venjulega var himbrimi á veiðum á vatninu. Að þessu sinni sá ég einungis einn fugl sem er óvenjulegt því þeir yfirgefa ekki vatnið sitt fyrr en fæðuöflun síðar að hausti verður erfiðari. Vissulega er hugsanlegt að varpið hafi misfarist snemma og annar fuglinn farið á flakk á undan hinum. Nú eða að hann hafi hreinlega drepist úr elli. Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu næsta vor.
Veiðin hófst og flugunni kastað hringinn í kringum Réttartangann. Ekki varð ég nú var við fisk en ánægjulegt var að kasta í góða veðrinu. Ég var reyndar í tómu tjóni vegna þess að ég var með sáralítið af taum. Ég hef sennilega mislagt taumasafnið mitt einhvers staðar þegar ég fór í Ónefndu vötnin með félögum mínum í byrjun ágúst. Ætli einhver veiðimaðurinn hafi ekki fundið taumaspólurnar á bakkanum við Harðarvatn. Sólin settist en sem betur fer var alveg ratljóst þegar ég gekk af fjalli undir fullu tungli. Tímanum hefði ef til vill verið betur varið við að tína ber með eiginkonunni í stað þess að þrælast upp í vatn. eða nei. Þetta snýst ekki bara um aflann.
Veiðin: 0 fiskar.



