Upphaflega skrifað 24. júlí 2008
Það var orðið tímabært að heimsækja Hraunsfjörðinn aftur, fannst okkur hjónunum. Fórum á sömu slóðir og síðast og gengum síðan niður að vatni á um það bil 15 mínútum meðfram Þórsá Dætur okkar voru báðar með í för eins og síðast og sú eldri, minnug þess sem gerðist síðast, segir við systur sína. ,,Passaðu þig á að stíga ekki á stangirnar. Pabbi verður ekki ánægður ef það gerist.“




