Það komu þvílíkir dásemdar dagar núna undir lok langrar dvalar við smíðar í Brautarlæk. Eftir nokkuð langt rigningartímabil fór sólin að láta sjá sig. Önnur dásemdin var sú að nú gátum við aðeins farið að slaka á. Sólpallurinn sem við höfum verið að smíða í sumarfríinu er risinn. Fyrsta verk í slökuninni var að sjálfsögðu að finna til veiðidótið. Það fannst í geymslu hér í Brautarlæk. Allar voru græjurnar í fínu ástandi nema háfurinn. Hann var vel götóttur. Hafði þá ekki mús náð að læða sér inn í skúrinn. Þeir sem hafa lent í músafári þekkja það vel að mýsnar eyra engu.
Hvað um það þá ákváðum við hjónin að reyna við Selvatn og ætluðum að leggja í grennd við húsið hans Gumma Daníels. Núna er ekki nein von um að Guðrún hitti á hann vegna þess að hann lést í janúar 2025. Blessuð sé minning hans. Þegar við komum að húsinu hans þá kom bíll á eftir okkur og stöðvaði. Við héldum að þar væri ferðamaður í villum svo Guðrún fór úr bílnum og spurði unga konu sem í honum var hvort hún væri að villast. Nei, sagði hún og sagðist eiga húsið. Guðrún hváir þá við: „Hvað segir þú? Ekki ert þú dóttir hans Gumma Daníels. Svo reyndist vera og unga konan spyr hvort Guðrún hafi þekkt pabba hennar og Guðrún segir henni þá söguna af kynnum hennar og Guðmundar. Áframhaldandi veiðileyfi var auðfengið svo við gengum þessa skemmtilegu leið að norðanverðu vatninu. Fyrst fram hjá bústað Gumma og í gegnum birkiskóglendið sem í kringum hann er. Næst í gegnum mýrarfláka, aftur í gegnum smávegis skóglendi, yfir melana og niður að vatninu. Þar settumst við niður og hófum veiðar.
Veiðarnar fóru hægt af stað en þegar sól lækkaði á lofti fór hann að taka. Hvort það var vegna þess að sólin var að setjast eða hvort það var vegna þess að beitan endaði á réttum stað veit ég ekki. Í öllu falli þá komu silungarnir sex sem veiddust á færið á nákvæmlega sömu stöðum og þegar við fórum síðast í vatnið. Í vatninu er bæði bleikja og urriði. Urriðinn er sennilega fjölmennari. Við lönduðum fimm urriðum og einni bleikju. Stærðin þetta eitt til tvö pund.
Að lokinni þessari ánægjulegu kvöldveiði gengum við sömu leið til baka. Sólin var sest en fullt tunglið óð í skýjunum.



