Upphaflega skrifað 27. maí 2017
Krakkarnir í Laugalækjarskóla þurfa að vinna eitt stórt lokaverkefni áður en þau útskrifast úr tíunda bekk. Dóttir okkar ásamt vinkonu hennar ákváðu að skrifa verkefni um tónlistarstefnur sem mér þótti nú bara ágætt val vegna þess að báðar eru þær að læra á píanó. Til viðbótar skrifunum um tónlistarstefnurnar ákváðu þær að semja sitthvort lagið og síðan eitt saman sem þær spiluðu síðan fjórhent. Þetta þótti mér metnaðarfullt hjá þeim því þær þurftu ekki aðeins að semja lögin og æfa sig að spila þau heldur þurftu þær einnig að læra að skrifa lögin upp í nótnaskriftarforriti og gera heimasíðu vegna þess að þannig ætluðu þær að skila verkefninu. Fyrir forvitna má skoða heimsíðuna þeirra hér. Neðst á síðunni er hlekkur á nóturnar og lögin þeirra.
Þegar þær voru að vinna í verkefninu voru þær einnig að læra fyrir hin ýmsu próf. Dóttir mín samdi lagið sitt á milli þess sem hún lærði fyrir stærðfræðipróf og þess vegna fékk lagið nafnið, Stærðfræði í dúr og moll.
Hér fyrir neðan spilar dóttir okkar lagið Stærðfræði í dúr og moll á flygilinn í salnum í Breiðagerðisskóla. Vinkona hennar fylgist „full af áhuga“ með.
