top of page
VEFUR KELA


Lissabon 2025
Námsstefna í Portúgal 24. - 30. nóvember 2025 Það var einstaklega fallegt vetrarveður í Sæviðarsundinu þegar við lögðum af stað rétt eftir hádegi. Sól var lágt á lofti og heiðbjört sýn af Reykjanesinu yfir á Esjuna, Akrafjallið, Hafnarfjall og Snæfellsnesið. Sól var að setjast í vestrinu þegar flugvélin tók á loft um fjögurleitið. Við hjónin vorum á leiðinni til Lissabon, höfuðborgar Portúgals. Kveikja ferðarinnar var boð sem ég fékk á námsstefnu móttökuskóla English Matters.
7 hours ago12 min read
bottom of page