Heiðarvatnið, ágúst 2001
- Þorkell Daníel Jónsson
- Aug 18, 2001
- 1 min read
Ekki er gott að ganga langt í gúmmígalla.

Ég gekk fyrst upp að Heiðarvatninu sumarið 1986 og þá aðeins til að skoða það. Tengdapabbi hafði sagt mér frá veiði í því enda hafði hann og hans fjölskylda nýtt sér það til að draga björg í bú alla öldina. Honum þótti greinilega vænt um vatnið en hann lýsti því aldrei sem góðu veiðivatni. Sagði að það væri hálf vonlaust að veiða það á stöng. Ekki það að hann hafi reynt það mikið því fjölskyldan lagði alltaf net í Veiðivíkina. Einu sinni sagði hann mér frá því að hann hafi reynt að leggja net að vetri til þegar vatnið var ísi lagt. Hann hafði tekið eftir því að það var af einhverjum ástæðum sprunga í ísnum og lagði hann netið eftir sprungunni. Ekki kom nú mikið út úr því en einn silungur þó.
Ég gekk í Heiðarvatnið þegar haustið var tekið að nálgast. Gangan tekur í og ég var í gúmmíregngalla þannig að maður svitnaði illa á þessari göngu. Hún var þó þess virði því þrír ágætis urriðar komu á land.

Comentarios