top of page

Moondance

  • Þorkell Daníel Jónsson
  • Mar 26, 2018
  • 1 min read

Updated: Aug 5, 2023

Lag og texti: Van Morrison


Eitt laugardagskvöldið fyrir nokkrum árum sátum við hjónin fyrir framan skjáinn og horfðum á myndina August Rush frá árinu 2007. Í myndinni spilar lítill tónlistarsnillingur lagið Moondance eftir Van Morrison. ,,Alveg rétt“ hugsaði ég,; ,,þetta er frábært lag.“ Fór á netið og fann eina útsetningu fyrir gítar. Lærði hluta af henni en kláraði aldrei almennilega.


Um daginn fann ég þessa útsetningu aftur og ákvað að það væri kominn tími til að klára dæmið. Reyndar leitaði ég fleiri útsetningar uppi og sameinaði tvær þeirra í þá sem ég stefni á að læra. Ef mér tekst á endanum að spila lagið sómasamlega set ég myndbandsupptöku af spilamennskunni með þessari grein.


Lagið Moondance eftir norður írska tónlistarmanninn Van Morrison kom út árið 1970 og var á samnefndri plötu. Platan þykir einstaklega góð og komst í 65. sæti lista tímaritsins Rolling Stone yfir 500 bestu plötur allra tíma. Lagið sjálft komst í sæti 224 yfir bestu lög allra tíma. Morrison hefur ekki lagt það í vana sinn að gaspra um verk sín. Um lagið Moondance hefur hann ekki annað sagt en að það hafi verið samið á saxafón.






Comments


bottom of page