top of page

Brautarlækjarannáll 2010

  • Þorkell Daníel Jónsson
  • Oct 4, 2010
  • 5 min read

Minkurinn við Tangavatn 1. - 3. apríl 2010


Veturinn heldur enn í framdal Norðurárdals. Vatn gátum við ekki sótt í Brautarlækinn sem rennur fram vestan megin við húsið því þykkur klaki er yfir honum öllum. Urðum því að sækja vatn í Norðurána. Gerðum okkur ferð upp að Tangavatni. Það ver þykkur ís yfir því öllu og hefði verið frábært ef við hefðum haft skautana með því ísinn var rennisléttur. Það var snjóföl ofan á ísnum og í snjónum sáum við göngubrautir eftir mink þvers og kruss um vatnið. Þar sem við stöndum á miðju vatninu sjáum við mink hlaupa á harðaspretti þvert yfir vatnið og hverfa á milli steina við bakkann. Það er alveg magnað hvað þetta er harðger skepna.


Við gerðum könnun á fjölda gistinátta í Brautarlæk undanfarin ár og var niðurstaðan þessi: 2009 = 44, 2008 = 40, 2007 = 30 og 2006 = 49. Áætluð ársnotkun á rafmagni eru 3057 kílóvatnsstundir sem þýðir kostnaður upp á 46.507 kr.



Trjáklippingar 9. – 11. apríl 2010


Enn er klaki í jörðu en allan klaka hefur tekið upp á yfirborðinu. Brautarlækurinn er orðinn klakalaus. Suðvestan strekkingsvindur og rigning. Hiti fjórar til átta gráður.


Rafmagnsofnarnir voru alla vikuna á fjórum og hiti um 15 gráður í húsinu þegar við komum. Það hvessti mjög á laugardagskvöldinu og þá klólnar hratt í húsinu.

Klipptum víðirunnana sunnan við húsið og bárum afklippurnar yfir lækinn. Spiluðum rommí og Harpa og Lilja lærðu stærðfræði.



Vatnsleki og gróðursetning 22. – 24. maí 2010


Heiðskýrt var alla helgina og hlýtt. Vatn hafði streymt undir innréttinguna í eldhúsinu og niður í gólfklæðninguna. Rifum innréttinguna frá og eina gólffjöl. Krani hafði gefið sig vegna frostskemmda. Settum saman að nýju til bráðabirgða. Viljum sjá þorna undir gólfinu áður en við gerum meira.


Gróðursettum áttatíu birkiplöntur af kvæminu Embla. Plönturnar voru keyptar af gróðrastöðinni Mörk í Fossvoginum. Gróðursettum einnig eina reyniviðarhríslu og einn gráðöl í tilraunaskyni. Bárum áttatíu kg af áburði á plönturnar. Fjörutíu kílóin sem við eigum eftir eru ætluð til áburðargjafar og áburðavökvunar á nýju plönturnar. Það er nauðsynlegt að fylgjast vel með birkinu í sumar og stíga eða reita lúpínuna frá plöntunum svo þær njóti sólar.


Lagfærðum hliðið vestan við lækinn. Nauðsynlegt að taka hring með girðingunni næst þegar við komum. Baldur, Edda, Árni og Stefanía komu við á leið norður og aftur á leið suður.

Hér er engin öskumóða 4. – 6. júní 2010



Höfum verið hér í steikjandi hita um helgina. Engin öskumóða hér eins og fyrir sunnan þar sem allt er öskugrátt vegna gossins. Vökvuðum trén sem við gróðursettum um hvítasunnuhelgina. Klipptum eitt blágrenið til og einnig söguðum við alaskavíði niður til að skapa blágreninu lífsrými. Fundum stokkandarhreiður með níu ekkjum í hólnum suðaustanverðum og sennilega hefur maríuerlan gert sér hreiður í grunninum undir húsinu. Fórum einnig í heimsókn að Hvammi.

Borholurnar 17. – 18. júlí 2010


Bjart veður og nokkuð hlýtt þótt vindur stæði að norðan. Það stendur til að reyna aftur að bora þannig að við fylltum holuna upp með möl að 15 metrum og restin verður steypt. Fengum aðstoð Hjartar í Hvammi við þetta verk. Von er á bormönnum í næstu viku.

Máluðum eina umferð á þakið með mógrænni Þol þakmálningu. Nauðsynlegt er að mála aðra umferð eða amk. bletta yfir þar sem var grunnað. Slóum lúpínu á hólnum og vökvuðum trén sem við settum niður í vor. Dísa, Sigurbjörg og börn komu við eftir dvöl fyrirr norðan og einnig Imba, Kristján og Dídí eftir helgardvöl á Ströndum. Ingibjörg Lilja fór að Hvammstanga og mun dvelja þar fram í vikuna.


Í vikunni á eftir mætti Ræktunarsamband Flóa og Skeiða og boruðu nýja holu fyrir okkur. Þvermál þessarar holu er ívið stærra en þeirrar fyrri sem gerir auðveldar með að koma tengingum og dælu fyrir. Nýja holan er mun mun dýpri en sú gamla. Holan er 85 metra djúp og vatnið sem hún gefur fannst á 75 metra dýpi. Sem betur fer þá gefur hún mikið vatn, eina 110 lítra á mínútu. Fóðringin nær niður á 24 metra og steypt er með henni.



Við mættum síðan á laugardeginum til að hjálpa til við að tengja holuna við húsið. Það var mikil leirdrulla sem kom upp úr holunni og skurðinum að húsinu þannig að þessu fylgdi nokkuð rask sem mun taka einhvern tíma að jafna sig. Vatnið sem síðan streymdi í kranana reyndist ekki gott en þó mun betra en úr gömlu holunni. Mikið mýrarbragð. Það er víst tilfellið með svona holur að það þarf að dæla úr þeim svo þær hreinsi sig og best er að þær séu í stöðugri notkun. Það verður ekki tilfellið í Brautarlæk þannig að sett var lögn út í læk þannig að það er hægt að tengja framhjá krönunum og dæla hraustlega út í læk þegar hreinsa þarf holun. Svo mikið vatn er í holunni að þótt dælan gangi á fullu þá tæmir holan sig ekki.

Þurrkatíð 31. júlí – 2. ágúst 2010


Veður hlýtt og gott yfir helgina. Tíu aðframkomnir laxar undir brúnni vegna hita og þurrka. Örlítið dropar úr lofti og vonandi verður eitthvað úr ofankomunni á næstunni eins og búið er að spá.

Smíðuðum kassa undir eldavélina svo hún svíði ekki kantinn a borðplötunni. Lokuðum sökklinum undir vaskaskápnum í eldhúsinu. Skiptum um rúðu í stofuglugga lengst til vinstri þegar horft er yfir að Hvammsmúla.


Kíktum eftir vatnsstöðunni í Sanddalsá. Þar var fólk í nærri öllum húsunum. Sanddalsá rennur varla. Við gátum ekið niður með henni Hvammsmegin. Hittum Gunnar Lárusson á Króksbrúnni en hann var á leiðinni norður.

Dyttað að ýmsu 5. – 8. ágúst 2010


Veðrið var hlýtt og milt. Bárum viðarolíu á pallinn og skiptum skemmdum fjölum á dekkinu út. Löguðum annað hliðið á pallinum svo það strjúkist ekki við dekkið þegar það er opnað og lokað.


Kvenfólkið tíndi ber og síðan var sultað í einar 15 krukkur. Á sunnudeginum var Hörpu skilað í bústað sem Jenna frænka hennar og amma dvöldu í. Þær voru síðan sóttar á miðvikudeginum. Við Guðrún fórum vestur á Snæfellsnes að veiða í Bakkaá og Gríshólsá. Veiddum átta sjóbirtinga.





Björg dregin í bú 2. - 22. ágúst 2010


Það var kalt, hiti fór ekki yfir 7 gráðurnar að deginum og var fallinn í 4 gráður á miðnætti. Norðanátt og skúrir. Fórum í heiðarvatnið þar sem kvenfólkið tíndi ber á meðan ég reyndi að veiða. Þrír urriðar veiddust 2 – 3 pund. Á sunnudeginum reyndi ég áfram að veiða en nú í ónefndri á og náði þremur löxum á land. Stærsti þeirra var 78 cm. Á meðan sultuðu stelpurnar úr berjunum og spiluðu spil. Dæmigerð haustferð þar sem björg voru dregin í bú.







Seinni smölun 1. – 3. október 2010

Gróður er orðin mjög litaður af hausti. Ég fór yfir að Hvammi í Dölum í smalamennsku. Á meðan dvöldu Guðrún, Lilja, Inga Dís og Arnór í Brautarlæk. Músagangur er mikill. Greinilegt að mýsnar hafa tímgast vel því sumarið var gott. Nú er farið að kólna svo þær leita að húsinu vegna hitans sem það gefur frá sér.


Gengum frá húsinu og gerum ekki ráð fyrir að það verði mikið dvalist í því fyrr en næsta vor. Á laugardeginum var yndislega hlýtt og hitinn steig í 13 gráður að deginum. Guðrún drullumallaði með krökkunum í góða veðrinu sem endaði á alvöru síðdegiskaffi úti við læk. Það er ekki amalegt að geta farið í lautarferð annan október.



Comments


bottom of page