top of page

Brautarlækjarannáll 2017

  • Þorkell Daníel Jónsson
  • Oct 8, 2017
  • 2 min read

Spjall spil og íslenskar bíómyndir 13. - 15. apríl 2017


Komum á skírdag. Veður var bjart, norðanátt og hiti um 1 gráða. Síðan kólnaði og hitinn féll í mínus sjö gráður. Fallegur ljósagangur hófst á himninum. Á föstudeginum gekk á með stöku éljum en snjór festi ekki á jörð fyrr en síðdegis. Áttum góðar samverustundir með Lilju, Kristjáni, Imbu og Haraldi. Spjall, spil og bíómyndir.


Sárfættur hundur 9. - 11. júní 2017



Það var ekki hlýtt þessa helgina. Norðaustanátt á laugardeginum og hrein norðanátt á sunnudeginum. Þegar við komum í hús kom ekkert ljós í stofuna og ekki gekk okkur að slá örygginu í rafmagnstöflunni inn. Eftir smá leit að seku rafmagnstæki sem ekki fannst uppgötvuðum við að það var útsláttarrofinn sjálfur sem var ónýtur.


Á laugardeginum gengum við Guðrún, Lilja og Lappi inn að norðurenda Langavatns og veiddum síðan bakkann til baka. Þetta var hin ánægjulegast ganga og fallegt því þrátt fyrir kuldann var hálfskýjað svo sólinn yljaði okkur öðru hvoru. Lappi fór illa að ráði sínu því hann hafði ekki vit á því að ganga í gróðrinum og undir lok ferðar var hann greinilega orðinn sárfættur. Þegar við komum síðan í Brautarlæk gat hann hreinlega ekki gengið yfir mölina inn í hús þannig að við urðum að bera hann. Það sem eftir var ferðar lá hann hann í fleti og sleikti sárin.


Gras og lúpínusláttur 10. - 17. júlí 2017



Dvöldum í Brautarlæk frá mánudegi til mánudags. Fyrstu tvo dagana var veður eins og best verður á kosið en síðan fór að rigna á miðvikudeginum. Það var þungt yfir og gekk á með skúrum restina af dvölinni. Slóum gras í kringum húsið og í balanum við lækinn. Lúbínan á hólnum var einnig slegin.


Á miðvikudeginum skutumst við Heydalsveginn yfir í Dalina og prófuðum veiði í Oddastaðavatni. Afraksturinn af þeirri veiði voru tveir smásilungar. Á fimmtudeginum vann ég með Ingþóri í Knarrarhafnarhúsinu. Á meðan dvaldi Inga Dís með Guðrúnu og Lilju í Brautarlæk. Á sunnudeginum skruppum við í Hólmavatn. Afrakstur þeirrar ferðar voru fjórtán urriðar og ein bleikja. Nýr gaskútur keyptur fyrir grillið.


Fá ber við Rjúkandaborgir 18. - 20. ágúst 2017



Á meðan ríflega hundrað þúsund Íslendingar nutu dásemda menningarnætur í borginni fóru karl, kerling og hundur í árvissa veiðiferð í heiðarvatnið. Fyrst var ekið svo langt sem komist var í átt að heiðarvatninu og síðan tók við svitaganga mikil. Við áðum um stund við Rjúkandaborgir því þar þroskast aðalbláber í góðu árferði. Fram eftir sumri lét sólin lítið sjá sig þannig að það var eins og okkur grunaði. Fá voru berin.


Veiðin skilaði tveimur urriðum og annar þeirra reyndist ansi myndarlegur fiskur. Heil fimm og hálft pund. Sá fékkst á milli Breiðavíkur og Lómavíkur. Hinn fékkst fyrir miðju á sunnanverðum Réttartanganum. Fleira gerðum við nú ekki þessa helgina.


Gengið frá fyrir veturinn 6. og 7. október 2017


Það var ágætis veður í þessari síðustu ferð ársins í Brautarlæk. Smávegis rigningaskúrir, hiti 5 – 9 gráður og haustbragur á öllu. Lauf enn á trjám en græni liturinn á hröðu undanhaldi. Við hittum Hólsfólkið sem var að smala Króks, Háreksstaða og Hólslönd. Gengum frá fyrir veturinn með því að blása úr lögnum og slökkva á dælu og ofnum.

Commenti


bottom of page